Fotbolti.net
07.01.12 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Jóhann Helgason í KA (Staðfest)

Jóhann ásamt afa sínum Jóhanni Helgasyni eftir undirskriftina.

Jóhann ásamt afa sínum Jóhanni Helgasyni eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: KA

KA hefur fengið miðjumanninn Jóhann Helgason á láni frá Grindavík en leikmaðurinn skrifaði undir samninginn í KA-heimilinu í dag.
Jóhann, sem er 27 ára, er uppalinn KA-maður en hann gekk í raðir Grindvíkinga eftir sumarið 2006.

Samtals hefur Jóhann leikið 177 leiki með KA og Grindavík og skorað í þeim 21 mark.

„Við erum gríðarlega ánægðir með að endurheimta Jóa Helga í KA. Hann er ekki bara á frábærum fótboltaaldri heldur með mikla leikreynslu úr úrvalsdeild sem mun nýtast liðinu mjög vel,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA á heimasíðu félagsins.

,,Með komu hans eykst breiddin á miðjunni til muna sem gefur okkur ýmsa möguleika. Hann er þriðji heimamaðurinn sem snýr til baka síðan í sumar og það er einmitt það sem lið KA hefur vantað, reynslumikla KA-menn sem eru fyrirmyndir fyrir okkar ungu leikmenn og koma með mikla reynslu í klefann og inn á völlinn.\"

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.