Fotbolti.net
07.01.12 - 15:39
Hafliði Breiðfjörð

Tómas Leifsson í Selfoss (Staðfest)

Tómas Leifsson er genginn til liðs við Selfoss.

Tómas Leifsson er genginn til liðs við Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Tómas Leifsson er genginn til liðs við nýliða Selfoss í Pepsi-deild karla en hann kemur til félagsins frá Fram sem hann hefur leikið með undanfarin ár.
Frá þessu var greint á vefnum Sunnlenska.is í dag en Tómas gerði tveggja ára samning við Selfoss í dag.

Hann hafði staðfest við Fótbolta.net í vikunni að hann væri á förum frá Fram og er nú búinn að semja við Selfoss.

Tómas hefur leikið með Frömurum síðustu tvö sumur en samtals lék hann 34 leiki fyrir félagið í deild og bikar.

Hann lék þó aðeins átta leiki í Pepsi deildinni í sumar vegna meiðsla en í samtali við Fótbolta.net kvaðst hann á góðri leið með að ná fullum bata.

Tómas sem er 26 ára gamall hafði áður leikið með Fjölni áður en hann gekk í raðir Fram en hann er uppalin hjá FH.

Tómas sem bæði getur leikið sem hægri og vinstri kantmaður segir að einhver lið hafi sýnt sér áhuga en að hann muni skoða málin á næstunni.

Selfoss hafði áður fengið Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni en þrír leikmenn eru hættir frá síðasta tímabil. Einar Ottó Antonsson er kominn í frí frá fótbolta og þeir Ingþór Jóhann Guðmundsson og Sævar Þór Gíslason eru hættir.

Logi Ólafsson þjálfar liðið sem leikur í Pepsi-deildinni að nýju í sumar eftir eitt ár í 1. deild.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.