07.02.06 - 17:37
Magnús Már Einarsson
Stoke fær Skoko á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur fengið Josip Skoko miðjumann Wigan að láni út þessa leiktíð en lið í neðri deildunum geta ennþá fengið menn á láni þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé búinn að loka.
Johan Boskamp stjóri Stoke hafði reynt að fá þennan þrítuga Ástrala á láni í janúar en leikmaðurinn sjálfur var tregur til þá. Hann hefur hinsvegar nú ákveðið að slá til og fara á láni til Stoke út þessa leiktíð.
,,Það er frábært að fá Josip því hann gefur okkur möguleika. Hann verður góður leikmaður fyrir þetta félag, ég tel að allir aðdáendurnir eigi eftir að líka við hann og núna vil ég sjá hann spila," sagði Boskamp við heimasíðu Stoke.