Fotbolti.net
07.02.07 - 13:45
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Roberto Ayala til Villarreal í sumar (Staðfest)

Ayala fer til grannanna í Villarreal í sumar

Ayala fer til grannanna í Villarreal í sumar

Canon

Mynd: Getty Images

Villarreal hafa gengið frá samningum við argentíska landsliðsmanninn Roberto Ayala og gengur hann til liðs við félagið í sumar á frjálsri sölu frá Valencia.
Þessi 33 ára gamli leikmaður, sem verður fyrirliði Argentínu þegar þeir sækja Frakka heim í París í kvöld, skrifaði undir þriggja ára samning Gula Kafbátana eins og Villareal er kallað.

Ayala hefur spilað 174 deildarleiki fyrir Valencia á sjö tímabilum og hefur á þeim tíma unnið deildina tvisvar sinnum og UEFA bikarinn árið 2004. Áður hafði hann spilað með Napoli og AC Milan á Ítalíu og River Plate í heimalandinu.

Þá eru Villarreal einnig nálægt því að fá til sín sóknarmanninn Matías Vidangossy, sem kemur frá Unión Espanola í Chile.

Heimild: Opinber heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.