07.02.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Dejan Miljkovic og Víkingur í Fjarðabyggð (Staðfest)

Heimir Þorsteinsson, annar af þjálfurum Fjarðabyggðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjarðabyggð í annarri deildinni hefur fengið Dejan Miljkovic og Víking Pálmason til liðs við sig.
Dejan hjálpaði Tindastól/Hvöt að vinna aðra deildina á síðasta tímabili en nú er ljóst að hann leikur með Fjarðabyggð á komandi sumri.
Þessi 35 ára gamli Serbi getur leikið bæði á miðjunni og í fremstu víglínu en hann skoraði þrjú mörk í 14 leikjum síðastliðið sumar.
Víkingur, sem er fæddur árið 1991, spilaði með Fjarðabyggð í yngri flokkunum en hann skipti yfir í Þór árið 2008.
Á síðasta tímabili var Víkingur í láni hjá KF en þar spilaði hann tuttugu leiki í annarri deildinni.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar