07.02.12 - 07:30
Magnús Már Einarsson
Stefán Þór og Hlynur Örn í Breiðablik (Staðfest)

Stefán Þór Pálsson.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Stefán Þór Pálsson og Hlynur Örn Hlöðversson hafa gengið til liðs við Breiðablik en þeir skrifuðu báðir undir þriggja ára samning við félagið.
Stefán Þór kemur til Blika frá ÍR en hann spilaði sautján leiki í fyrstu deildinni og í Valitor-bikarnum í fyrra.
Þessi sóknar og kantmaður er fæddur árið 1995 en hann hefur leikið bæði með U19 og U17 ára landsliði Íslands.
Í vetur hefur Stefán Þór æft með Breiðabliki en hann skoraði meðal annars gegn Stjörnunni í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins um liðna helgi.
Hlynur Örn kemur til Blika frá KF en hann er fæddur árið 1996. Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur þessi stóri og stæðilegi markmaður spilað leik með meistaraflokki.

Heimild: Heimasíða Breiðabliks