Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 21:21
Ívan Guðjón Baldursson
Kaupákvæðið fyrir Álex Jiménez var virkjað í dag
Mynd: EPA
Bakvörðurinn sókndjarfi Álex Jiménez skiptir alfarið yfir til Bournemouth eftir að hann var í byrjunarliðinu í 1-1 jafntefli gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Jiménez fór til Bournemouth á lánssamningi síðasta sumar, með árangurstengdu kaupskylduákvæði. Sú kaupskylda hefur verið virkjuð eftir enn einn byrjunarliðsleik Jiménez sem virðist passa fullkomlega inn í liðið hjá Andoni Iraola.

Bournemouth borgar um 17 milljónir punda til að kaupa Jiménez, auk 4,5 milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur.

Jiménez er 20 ára gamall og skrifar undir fimm og hálfs árs samning sem gildir til sumarsins 2031.
Athugasemdir
banner