07.03.06 - 12:53
Magnús Már Einarsson
Kristinn Hafliðason í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Miðjumaðurinn sterki Kristinn Hafliðason hefur gert tveggja ára samning við Val en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net nú rétt í þessu. Kristinn kemur til Valsmanna eftir eins árs dvöl hjá Þrótti og er honum væntanlega ætlað að fylla skarð Stefáns Helga Jónssonar sem hefur lagt skóna á hilluna.
,,Ég er mjög spenntur fyrir Völsurunum. Það er margt spennandi að gerast," sagði hinn 31 árs gamli Kristinn við Fótbolti.net en hann hefur einnig leikið með KR, ÍBV, Fram og Víking hér á landi og þá hefur hann spilað í Þýskalandi og í Noregi.
Aðspurður hvort það hafi verið það að spila í Landsbankadeildinni sem hafi gert útslagið sagði hann: ,,Úrvalsdeild heillar meira en fyrsta deild en það var ekki aðalmálið. Það eru mörg atriði sem að koma þarna að og þetta varð í raun og veru lendingin. Það er algjör óþarfi að vera að fara út í einhver smáatriði og kýtast eitthvað. Ég er kominn í Val og er sáttur með það og ég held að það sé allt í góðu milli Vals og Þróttar og að þau hafi fengið góða lendingu í allt þetta mál. Ég er kominn í Val og ég er sáttur, ég held að það sé aðalmálið."
Kristinn var mikið meiddur á síðustu leiktíð en skoraði eitt mark í sjö leikjum í Landsbankadeildinni. Hann er sem stendur í skóla í Bandaríkjunum en hann mun koma til Íslands fyrir fyrsta maí og er líklegast að hann komi í lok apríl.