07.03.08 - 15:20
Magnús Már Einarsson
Lamine Diatta til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur fengið senegalska varnarmaninn Lamine Diatta en hann kemur frítt til félagsins.
Diatta var án félags eftir að hafa yfirgefið Besiktas í Tyrklandi og hann hefur nú gert samning við Newcastle út tímabilið eftir að hafa hrifið forráðamenn liðsins á æfingum.
,,Við höfum ekki marga möguleika ef að varnarmenn okkar meiðast og Diatta getur hjálpað til," sagði Kevin Keegan stjóri Newcastle.
Diatta var sjálfur ánægður með skiptin en ekki er ljóst hvort hann geti leikið sinn fyrsta leik fyrir Newcastle þegar að liðið mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Það veltur á því hvort þessi 32 ára gamli leikmaður nái að fá leikheimild í tæka tíð en stuðningsmenn Newcastle vonast væntanlega eftir því að hann nái að stoppa upp í götin í varnarleik liðsins.

Heimild: Sky