07.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Bjarni Pálmason í KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson

Sóknar og miðjumaðurinn Bjarni Pálmason hefur gengið til liðs við sitt gamla félag KA.
Bjarni lék með Hvöt síðastliðið sumar en í nóvember síðastliðnum skipti hann yfir í Hamrana/Vini.
Hann stoppaði hins vegar stutt við þar því nú er hann kominn aftur í uppeldisfélag sitt KA.
Þessi 24 ára gamli leikmaður skoraði sex mörk fyrir Hvöt í annarri deildinni síðastliðið sumar en hann kom við sögu í öllum leikjum liðsins.
Bjarni hefur fengið leikheimild með KA og því getur hann leikið með liðinu þegar að það mætir Fjölni í Lengjubikarnum í dag.