Ryan Gravenberch, einn af lykilmönnum Liverpool, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2023, en félagið greinir frá þessu í dag.
Gravenberch er 23 ára gamall Hollendingur sem kom til Liverpool frá Bayern München árið 2023.
Hann var ekkert í neitt svakalega stóru hlutverki á eina tímabili sínu hjá Jürgen Klopp, en fann sig í nýju hlutverki er Arne Slot tók við liðinu.
Þessi stóri og stæðilegi miðjumaður átti stóran þátt í að Liverpool varð Englandsmeistari á síðasta ári og er ætlað lykilhlutverk næstu árin, en hann hefur nú skrifað undir nýjan sex ára samning eða til 2032.
„Mér líður ótrúlega vel. Ég er stoltur að framlengja samning minn við svona stórt félag og er ánægður með að geta verið hér í mörg ár til viðbótar,“ sagði Gravenberch.
„Ég fann strax fyrir trausti frá félaginu og stjóranum, og var því auðvelt að taka þessa ákvörðun. Fjölskyldan er ánægð hér og höfum við verið hér í næstum þrjú ár, þannig ég er kominn með allt á hreint og bara í skýjunum með að vera hér,“ sagði hann.
Frábærar fréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool en Gravenberch var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð og í liði ársins.
Hann á 24 A-landsleiki og eitt mark fyrir hollenska landsliðið, og verður væntanlega í hópnum sem fer á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.
We're delighted to announce that Ryan Gravenberch has today signed a new long-term contract with the Reds ????
— Liverpool FC (@LFC) March 7, 2026
Athugasemdir

