Fotbolti.net
07.04.05 - 06:13
Magnús Már Einarsson

Juninho til Palmeiras (Staðfest)

Juninho til Palmeiras (Staðfest)
Canon
Miðjumaðurinn Juninho hefur samið við brasilíska liðið Palmeiras eftir að hann fékk sig lausan frá Glasgow Celtic í fyrradag. Juninho sem er 32 ára hefur áður leikið með Sao Paulo, Vasco de Gama og Flamengo í Brasilíu.
Juninho sem kom til Celtic síðastliðið sumar frá Middlesbrough lék aðeins 14 leiki fyrir skoska liðið á þeim sjö mánuðum sem hann var hjá félaginu en hinn ungi Aiden McGeady hefur haldið honum út úr liðinu á tímabilinu.

Martin O'Neill stjóri Celtic sagði meðal annars ,,Þetta hafa verið vonbrigði en ég sagði við hann að ég vildi ekki halda honum til fanga hér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.