07.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Tómas Arnar í Hött (Staðfest)

Hattarmenn hafa fengið liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Höttur úr annarri deild hefur fengið Tómas Arnar Emilsson til liðs við sig frá Huginn.
Tómas hefur verið lykilmaður hjá Huginn undanfarin ár og þá lék hann einnig með sameiginlegu liði Hugins/Hattar á sínum tíma.
Þessa stundina er Tómas í læknisfræðinámi í Ungverjalandi og því kemur hann ekki hingað til lands fyrr en í lok júní en þá mun hann byrja að leika með Hetti.
Tómas leikur oftast á miðjunni eða í vörninni en í fyrra skoraði hann fimm mörk í sjö leikjum fyrir Huginn í þriðju deildinni.

Heimild: Heimasíða Hattar