Fotbolti.net
07.05.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Vilhjálmur Darri Einarsson í Hött (Staðfest)

Vilhjálmur Darri í leik með KR í Egilshöll.

Vilhjálmur Darri í leik með KR í Egilshöll.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Vilhjálmur Darri Einarsson hefur fengið félagaskipti í Hött á Egilsstöðum en liðið leikur í 2. deild.

Vilhjálmur Darri sem er fæddur 1991 er afabarn Vilhjálms Einarssonar, Ólympíuverðlaunahafa frá Melbourne.
Honum hefur gengið illa að festa niður rótum síðustu ár. Hann er uppalinn hjá KR en skipti yfir í Grindavík í fyrra þar sem hann lék tvo leiki í Pepsi-deildinni áður en hann fór aftur til KR.

Vilhjálmur, sem á unglingalandsleiki að baki, gekk svo í raðir HK í vetur en hætti þar og er nú kominn á Egilsstaði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.