Fotbolti.net
07.05.20 - 14:32
Magnús Már Einarsson

Birkir mótastjóri: Ferðalagið eins og að fara í Evrópuleik

Auglýsing
Birkir mótastjóri: Ferðalagið eins og að fara í Evrópuleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta hefur verið áskorun. Það er ekkert verið að virða frídag Verkalýðsins á þessum tímum," sagði Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, við Fótbolta.net í dag.
„Mestu áskoranirnar voru í fyrstu og þriðju deild til að verstu ferðalögin seu ekki í miðri viku. Eins og fyrir Vestra að fara að keppa við Leikni Fáskrúðfjörð á Reyðarfirði, það er eins og að fara í Evrópuleik fyrir önnur lið."

Birkir hefur haft í nægu að snúast undanfarna daga við að endurraða Íslandsmótinu í öllum leikjum.

Keppni í Pepsi Max-deild karla á að ljúka 31. október og bikarúrslitaleikurinn á að vera 7. nóvember. Það gæti breyst ef landsleikjum og Evrópuleikjum í haust verður breytt.

„Þess vegna röðuðum við mótunum í Pepsi Max-deild karla og kvenna nema fram að Verslunarmannahelgi. Við getum brugðist við nýjum upplýsingum eftir Verslunarmannahelgi," sagði Birkir.

Hér að ofan má sjá viðtalið við Birki í heild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.