Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   fim 07. maí 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tómas og Hilmar Starri í Þrótt V. (Staðfest)
Mynd: Þróttur Vogum
Tómas Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt Vogum.

Tómas er sóknarmaður sem gekk til liðs við félagið frá Dalvík/Reyni. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Þrótt þegar liðið vann dramatískan sigur á Haukum í 2. deild um síðustu helgi. Tómas kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið.

Þróttur hefur einnig greint frá því að Hilmar Starri Hilmarsson hafi skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Hilmar er uppalinn Valsari en hann gekk til liðs við Þróttara á láni árið 2024 og aftur í fyrra. Hann hefur nú gengið alfarið til liðs við félagið. Hann hefur verið í námi í Bandaríkjunum en er mættur til landsins og byrjaður að æfa á fullu með félaginu.
Slapp
banner
banner