Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   fim 07. maí 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Völsungur fékk tvo markverði á gluggadeginum (Staðfest)
Lengjudeildin
Jochum Magnússon
Jochum Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn fyrir lið í Lengjudeildum karla og kvenna lokaði í gær. Völsungur styrkti sig á lokametrunum og fékk tvo markverði.

Jochum Magnússon er genginn til liðs við félagið frá Víkingi en hann er efnilegur markvörður.

Hann er fæddur árið 2007 en hann kom við sögu í einum leik í Reykjavíkurmótinu með Víkingi í vetur. Hann hefur spilað níu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

Þá er Stefán Stefánsson einnig genginn til liðs við félagið. Hann er uppalinn hjá HK en hann kom við sögu í einum leik hjá Ými í Mjólkurbikarnum í upphafi tímabilsins.
Slapp
banner
banner