07.06.06 - 16:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Cannavaro til Napoli (Staðfest)

Paolo Cannavaro horfir hér á eftir boltanum í leik með Parma

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Paolo Cannavaro gekk í dag til liðs við Napoli frá Parma eins og búist var við. Cananvaro fer til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningurinn hans við Parma rennur út í sumar.
Napoli hefur verið á eftir Cannavaro í nokkra mánuði eftir að það var ljóst að hann myndi ekki skrifa undir nýjan samning á Stadio Tardini.
Cannavaro, sem er yngri bróðir Fabio sem spilar með Juventus og ítalska landsliðinu, skrifaði undir fimm ára samning hjá Napoli en bræðurnir eru báðir fæddir og uppaldir þar.
Paolo fór frá Napoli til Parma árið 1999 eftir að hafa aðeins spilað tvo leiki fyrir félagið. Hann hefur verið þar síðan en eyddi reyndar 2001-02 tímabilinu á láni hjá Verona.