07.06.07 - 05:10
Magnús Valur Böðvarsson
Watford kaupir McAnuff (Staðfest)

Jobi McAnuff.

Mynd: Getty Images

Jobi McAnuff.

Mynd: Getty Images
Watford hefur fest kaup á hinum 25 ára kanntmanni Crystal Palace, Jobi McAnuff. McAnuff sem hefur verið fastamaður í liði Crystal Palace kostaði Watford 1,75 milljón punda og getur verðið hækkað up pí 2 milljónir punda ef liðið kemst upp um deild.
Aidian Bothroyd stjóri Watford segist lengi hafa verið mikill aðdáandi McAnuffs en hann reyndi fyrir síðasta tímabil að festa kaup á leikmanninum.
,,Ég er ánægður að vera kominn með hann en það er frábært að fá leikmann sem er jafnvígur á báða fætur og er jafn teknískur og snöggur og hann er," sagði Bothroyd.
Hins vegar virðist vera nokkur uppstokkun í liði Crystal Palace sem sömdu ekki aftur við Gabor Kiraly sem hefur verið aðalmarkvörður liðsins undanfarin ár en hann hefur gengið frá samningi við Burnley og þá er talið líklegt að bakvörðurinn efnilegi Gary Borrowdale fari til Coventry.
Þá gæti hinn 40 ára gamli Teddy Sheringham gengið til liðs við liðið en 19 ára gamall sonur hans Charlie er í varaliði liðsins.

Heimild: Skysports