Fotbolti.net
07.06.07 - 15:42
Hafliði Breiðfjörð

Mark Viduka til Newcastle United (Staðfest)

Mark Viduka.

Mark Viduka.

Canon

Mynd: Getty Images

Mark Viduka er genginn í raðir Newcastle United og skrifaði í dag undir tveggja ára samning með opinn möguleika á að bæta því þriðja við eftir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Viduka sem er 31 árs gamall kemur frá Middlesbrough þar sem honum bauðst nýr samningur en auk þess vildu Portsmouth, West Ham og Birmingham einnig fá hann í sínar raðir samkvæmt fréttum enskra fjölmiðla.

Hann er ástralskur framherji og mun væntanlega leika við hlið Michael Owen í framlínu Newcastle United á næstu leiktíð. Hann hafði komið til Middlesbrough frá Leeds í júlí árið 2004.

Hann skoraði 19 mörk fyrir Boro tímabilið 2006-2007.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.