07.06.08 - 11:12
Brynjar Ingi Erluson
Giovani Dos Santos til Tottenham (Staðfest)

Giovani mun spila í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hafa fest kaup á mexíkanska snillingnum Giovani Dos Santos sem kemur frá Barcelona.
Giovani kemur til Tottenham á 4,7 milljónir punda og gerir fimm ára samning við þá í leiðinni. Kaupverðið getur hækkað um 3,9 milljón punda, ef hann leikur ákveðna summu af leikjum.
Hann mun vera opinberaður leikmaður Tottenham 1. júlí, en allt er klappað og klárt í þessum viðræðum. Barcelona fá einnig 20 prósent af söluverði Giovani, verði hann seldur frá Tottenham á næstu tveim árum, og lækkar síðan niður í 10 prósent eftir það.
Giovani, sem er sonur fyrirverandi leikmann brasilíska landsliðsins, Zizinho, var í öllum yngri flokkum Barcelona, og því þarf hann ekki atvinnuleyfi á Englandi, þar sem hann er spænskur ríkisborgari.
Giovani er sem stendur meiddur, og mun því ekki snúa til æfinga hjá Tottenham, fyrr en eftir um mánuð eða í byrjun júlí.

Heimild: Sky