Fotbolti.net
07.06.11 - 08:49
Magnús Már Einarsson

Martin Jol tekinn við Fulham (Staðfest)

Martin Jol tekinn við Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Martin Jol hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Fulham en hann tekur við liðinu af Mark Hughes sem hætti í síðustu viku.

Jol hefur skriað undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Þessi 55 ára gamli Hollendingur þekkir til í ensku úrvalsdeildinni því hann stýrði Tottenham frá 2004-2007. Síðast var Jol þjálfari Ajax en hann hætti þar í desember.
,,Ég hlakka til að vera hluti af Fulham fjölskyldunni og þakka formanninum fyrir traustið sem hann sýnir mér,\" sagði Jol.

Eiður Smári Guðjohnsen er með nýtt samningstilboð frá Fulham en það ætti að koma í ljós á næstunni hvort Jol vilji semja við hann eða ekki.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.