Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   sun 07. júní 2026 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Fann áfengislyktina af honum inn í klefa"
Mynd: EPA
Fabio Capello hefur greint frá því að partístand hafi orðið til þess að hinn brasilíski Ronaldo var seldur frá Real Madrid til AC Milan á sínum tíma.

„Ronaldo er án efa besti leikmaður sem ég hef unnið með. Að vísu hafði hann ekki gaman af því að færa fórnir eða æfa. Hann var með gæði sem ég sá ekki hjá neinum öðrum leikmanni," sagði Capello.

Capello stýrði Real Madrid frá 2006-2007 en Ronaldo var leikmaður liðsins frá 2002-2007. Ronaldo skoraði 104 mörk í 177 leikjum fyrir Real Madrid.

Capello ræddi við Silvio Berlusconi, þáverandi eiganda Milan, um Ronaldo sem varð til þess að Milan nældi í Brasilíumanninn á endanum.

„Hann elskaði að djamma. Maður fann áfengislyktina á honum inn í klefa eftir djamm. Hann dró oft liðsfélaga sína með sér, ég neyddi hann til að yfirgefa félagið," sagði Capello.

„Ég talaði við Berlusconi. Ég sagði að við myndum senda Ronaldo til Saudi Arabíu. Berlusconi spurði hvernig Ronaldo hagaði sér, ég sagði að hann hefði gaman af því að djamma. Daginn eftir las ég að Ronadlo væri að fara til Milan."
Slapp
banner