Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Florentino Perez verður áfram forseti Real Madrid (Staðfest)
Florentino Perez verður áfram forseti Madrídinga
Florentino Perez verður áfram forseti Madrídinga
Mynd: EPA
Enrique Riquelme tapaði fyrir Perez
Enrique Riquelme tapaði fyrir Perez
Mynd: EPA
Florentino Perez verður áfram forseti Real Madrid á Spáni til 2030 en þetta varð ljóst eftir úrslit kosningananna í kvöld. Hann hafði sigur gegn Enrique Riquelme.

Florentino Perez hefur gegnt embætti forseta Real Madrid frá árinu 2009 og náð ótrúlegum árangri á tíma sínum hjá félaginu.

Real Madrid fór titlalaust í gegnum nýafstaðið tímabil og ákvað Perez því að boða til kosninga til að sjá hvar meðlimir félagsins stæðu. Háværar raddir höfðu verið innan félagsins um að tími væri kominn á breytingar.

Perez afsannaði það með sigri sínum í kvöld. Enrique Riquelme bauð sig fram gegn honum og lofaði gull og grænum skógum. Hann sagðist meðal annars ætla að fá Erling Braut Haaland og Rodri til félagsins frá Manchester City.

Manchester City var ekki lengi að vísa orðum hans til föðurhúsanna og taldi óraunhæft að hann gæti lofað slíku, enda er Haaland samningsbundinn félaginu til ársins 2034.

Þá sagðist Riquelme ætla að fá Jürgen Klopp sem nýjan þjálfara félagsins, en umboðsmaður Klopp sagði ekkert til í því og að Þjóðverjinn væri ánægður hjá Red Bull.

Perez er á meðan búinn að ganga frá flestu sem hann lofaði. Hann hefur náð samkomulagi við Ibrahima Konaté, Denzel Dumfries og Nico Paz. Auk þess mun hann ráða José Mourinho sem nýjan þjálfara, en það samkomulag er frágengið samkvæmt Fabrizio Romano.

Samkvæmt Perez mun félagið leggja fram 150 milljóna evra tilboð í mikilvægan leikmann í Evrópu. Michael Olise, leikmaður Bayern München, er sagður vera sá leikmaður.

Kosningarnar fóru fram í kvöld og skiptust atkvæðin þannig að Perez hlaut 80 prósent atkvæða sem greidd voru utan kjörfundar. Þá hafði hann sigur á öllum 60 kjörborðunum.

Samkvæmt COPE, Marca og AS hlaut Perez rúmlega 66 prósent allra atkvæða. Sigurinn virðist stór, en það gæti þó verið áhyggjuefni fyrir Perez að hann hafi ekki fengið enn stærri hluta atkvæða. Niðurstaðan er ákveðið merki um að margir meðlimir Real Madrid kalli eftir breytingum og gæti orðið ákveðin vakning fyrir forsetann.

„Þetta er fallegur dagur fyrir mig og alla stuðningsmenn Real Madrid,“ sagði Perez.

Talið er að Perez muni tilkynna komu Mourinho á morgun og að nokkrar leikmannatilkynningar fylgi í kjölfarið.
Slapp
banner