Aziz Yildirim er nýr forseti tyrkneska félagsins Fenerbahce eftir að hafa borið sigurorð af Hakan Safi.
Sadettin Saran tók við forsetaembætti Fenerbahce í september eftir að hafa sigrað þáverandi forseta félagsins, Ali Koc, í kosningum.
Á dögunum var Saran dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hvetja til ólöglegra veðmála með auglýsingum á leikvangi félagsins. Í kjölfarið tilkynnti hann að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri.
Valið stóð því á milli Aziz Yildirim og Hakan Safi. Yildirim var forseti Fenerbahce frá 1998 til 2018, á meðan Safi hefur setið í stjórn félagsins frá 1998.
Safi lofaði öllu fögru fyrir kosningarnar. Hann hafði meðal annars lofað að fá Mason Greenwood, Hakan Calhanoglu, Merih Demiral og Luis Suárez til félagsins, auk þess að ráða ítalska þjálfarann Antonio Conte.
Tapið í kvöld þýðir að ekkert verður af komu þeirra.
Stefna Yildirim heillaði meðlimi Fenerbahce, en hann vill fá tvo nýja framherja, stækka leikvanginn og ráða nýjan mann til að stýra knattspyrnumálum félagsins.
Yildirim sagðist einnig hafa undirbúið 300 milljóna dollara fjárhagsáætlun og ætla að freista þess að binda enda á skuldaendurskipulagningarsamning félagsins við hóp tyrkneskra banka.
Markmið hans er að vinna tyrknesku deildina á næsta tímabili, en erkifjendur Fenerbahce í Galatasaray hafa orðið meistarar fjögur ár í röð.
Yildirim er kjörinn til eins árs og hefur því næsta tímabil til að sannfæra meðlimi Fenerbahce um að hann sé rétti maðurinn til að leiða félagið áfram.


