07.07.06 - 09:25
Magnús Már Einarsson
Erlingur Þór í Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: trottur.is


Mynd: trottur.is
Afturelding hefur fengið liðsstyrk í annarri deildinni en Erlingur Þór Guðmundsson hefur komið til félagsins frá Þrótti.
Erlingur Þór sem getur leikið í vörn og á miðju gekk til liðs við ÍR síðastliðið haust en hætti fljótlega hjá félaginu og fór aftur í Þrótt. Hann fékk hins vegar ekki tækifæri hjá Þrótturum í sumar og hefur hann nú gengið til liðs við Mosfellinga.
Afturelding er sem stendur í neðsta sætinu í annarri deildinni en Erlingur Þór mun leika sinn fyrsta leik með félaginu gegn Völsungi á Húsavík á morgun.
Afturelding er sem stendur í neðsta sætinu í annarri deildinni en Erlingur Þór mun leika sinn fyrsta leik með félaginu gegn Völsungi á Húsavík á morgun.
