07.07.06 - 16:04
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jeremy Clement til Rangers (Staðfest)

Clement (til hægri) í baráttunni með Lyon.

Mynd: Getty Images

Clement (til hægri) í baráttunni með Lyon.

Mynd: Getty Images
Rangers hafa staðfest kaupin á hinum unga og efnilega miðjumanninum Jeremy Clement frá Lyon. Clement spilaði einmitt sinn fyrsta leik með Lyon undir stjórn Paul Le Guen, þjálfara Rangers.
,,Ég er mjög ánægður að ganga til liðs við Rangers og það er mjög spennandi að spila undir stjórn Paul Le Guen á ný. Hann gaf mér tækifæri hjá hjá Lyon og mér hlakkar til að endurnýja samband okkar í Glasgow,” sagði Clement.
Þetta eru fjórðu stóru kaup Le Guen í sumar en hann hefur einnig fengið Tékkann Libor Sionko, Svíann Karl Svensson og Frakkann Lionel Letizi auk fleiri ungra leikmanna.
Þetta eru fjórðu stóru kaup Le Guen í sumar en hann hefur einnig fengið Tékkann Libor Sionko, Svíann Karl Svensson og Frakkann Lionel Letizi auk fleiri ungra leikmanna.
