07.07.07 - 14:28
Magnús Már Einarsson
Andy Todd til nýliða Derby (Staðfest)

Todd fer fyrir skot frá Louis Saha.

Mynd: Getty Images

Todd fer fyrir skot frá Louis Saha.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Andy Todd hefur yfirgefið Blackburn Rovers og gengið til liðs við nýliða Derby County en þessi 32 ára gamli leikmaður hefur tveggja ára samning við félagið.
Nokkur félög eins og Birmingham, West Bromwich Albion og Sunderland sýndu Todd áhuga en hann ákvað að fara til Derby þar sem að faðir hans Colin átti góð ár bæði sem stjóri og leikmaður á sínum tíma.
,,Andy er ánægður með að hafa skrifað undir hjá Derby. Derby er frábært félag og Andy hlakkar til að spila á Pride Park," sagði Peter Harrison umboðsmaður Andy Todd við Sky Sport.
,,Andy er ánægður með að hafa skrifað undir hjá Derby. Derby er frábært félag og Andy hlakkar til að spila á Pride Park," sagði Peter Harrison umboðsmaður Andy Todd við Sky Sport.
Heimild: Sky
