07.07.08 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Paulo Assuncao til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Paulo Assuncao hefur gengið í raðir Atletico Madrid frá Porto á frjálsri sölu en frá þessu var greint í gær.
Assuncao sem er 28 ára gamall miðjumaður notaði ákvæði í samningi sínum til að rifta honum við Porto.
Atletico Madrid greindi líka frá því að Maniche miðjumaður liðsins myndi ekki koma saman við hópinn í dag eins og aðrir leikmenn.
Atletico á í viðræðum við nokkur félög um að kaupa Maniche sem hefur átt erfitt uppdráttar hjá spænska liðinu.

Heimild: Retuers