Fotbolti.net
07.07.09 - 16:20
Magnús Már Einarsson

Oguchi Onyewu til AC Milan (Staðfest)

Oguchi Onyewu til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur fengið bandaríska varnarmanninn Oguchi Onyewu til liðs við sig frá Standard Liege í Belgíu.
Onyewu, sem er 27 ára, hefur skrifað undir þriggja ára samning við ítölsku risana.

Onyewu lék mjög vel í Álfukeppninni og hjálpaði Bandaríkjunum að komast í úrslitaleikinn.

Í kjölfarið sýndu mörg félög honum áhuga en AC Milan náði að krækja í leikmanninn.

Onyewu hefur meðal annars spilað í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann lék með Newcastle á láni á sínum tíma.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.