07.07.11 - 07:04
Magnús Már Einarsson
Robert Earnshaw til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur krækt í framherjann Robert Earnshaw en hann kemur til félagsins frá Nottingham Forest.
Þessi þrítugi leikmaður kemur frítt til félagsins en hann hafnaði nýjum samningi hjá Nottingham Forest á dögunum.

Earnshaw ólst upp hjá Cardiff en fór frá félaginu árið 2004. Síðan þá hefur hann leikið með WBA, Norwich, Derby og Nottingham Forest.
Earnshaw hefur spilað í fjórum efstu deildunum á Englandi og náð að skora þrennu í þeim öllum en enginn annar leikmaður hefur leikið það afrek eftir.
Á þremur tímabilum hjá Nottingham Forest skoraði Earnshaw 45 mörk en hann hefur núna ákveðið að fara aftur til Cardiff.

Heimild: BBC