07.07.11 - 13:05
Hörður Snævar Jónsson
Wes Brown til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wes Brown er genginn í raðir Sunderland frá Manchester United en kaupverðið er talið vera um 4 milljónir punda.
Brown sem er 31 árs skrifaði undir fjögurra ára samning á Leikvangi ljósins.
Hann vann ensku deildina fimm sinnum með Manchester United, Meistaradeildina tvisvar og bæði bikar og deildabikar.
Hann spilaði 361 leik fyrir Manchester United og skoraði í þeim fimm mörk.
Þá á Brown að baki 23 A-landsleiki fyrir England og skoraði í þeim leikjum eitt mark.