07.07.11 - 18:01
Hörður Snævar Jónsson
John O´Shea til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur gengið frá kaupunum á John O´Shea frá Manchester United.
Kaupverðið er ekki gefið upp en hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Hann er annar leikmaður Manchester United sem gengur í raðir Sunderland í dag því fyrr í dag gekk Wes Brown í raðir félagsins.
,,Um leið og ég heyrði fréttir um félagið og fólkið hérna og metnað stjórans þá vissi ég að ég vildi fara hingað,\" sagði O´Shea.
Hann er þrítugur leikmaður sem getur leikið allstaðar í vörninni og á miðjunni.

Heimild: Heimasíða Sunderland