Fotbolti.net
07.07.11 - 23:35
Magnús Már Einarsson

Charlie Adam í Liverpool (Staðfest)

Charlie Adam í Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool gekk í kvöld frá kaupum á Charlie Adam fyrirliða Blackpool en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 25 ára gamli Skoti stóðst læknisskoðun hjá Liverpool í dag og hann hefur nú skrifað undir samning við félagið.

Adam sló í gegn hjá Blackpool á síðasta tímabili en bæði Liverpool og Tottenham reyndu að krækja í hann í janúar.

,,Ég er hæstánægður með að vera hér. Þetta hefur verið langur aðdragandi en núna get ég ekki beðið eftir að byrja og vonandi verður þetta góður tími á ferli mínum og í sögu félagsins,\" sagði Adam.

,,Liverpool er stórt félag með frábæra leikmenn og frábæran stjóra. Ég er hæstánægður með að geta labbað inn á sama völl og sumir leikmennirnir hér.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.