Fotbolti.net
07.08.07 - 14:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

James Morrison og Carl Hoefkens til West Brom (Staðfest)

James Morrison í baráttunni í leik með Middlesbrough

James Morrison í baráttunni í leik með Middlesbrough

Canon

Mynd: Getty Images

West Brom hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum James Morrison frá Middlesbrough fyrir 1,5 milljón pumda.
Þessi 21. árs gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið eftir að hann stóðst læknisskoðun á The Hawthorns.

Verðmiðinn gæti hækkað um 700 þúsund pund í viðbót en það fer eftir fjölda leikja sem hann spilar fyrir West Brom og þá fær Boro 15% af kaupverðir verði hann seldur þaðan.

Fyrr í dag fékk Albion einnig til sín varnarmanninn Carl Hoefkens en hann kemur frá Stoke City fyrir 750 þúsund pund.

Morrison spilaði tæplega 100 leiki fyrir Middlesbrough síðan hann spilaði sinn fyrsta leik í janúar 2004 og 28 leiki í Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.