07.08.09 - 07:00
Davíð Örn Atlason
Sebastien Bassong til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sebastien Bassong gekk í gær í raðir Tottenham frá Newcastl. Kaupverðið á Bassong er talið vera um átta milljónir punda.
Bassong stóðst læknisskoðun hjá félaginu og hefur samþykkt samningstilboð frá Tottenham.
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham vildi styrkja vörnina þar sem þeir Jonathan Woodgate, Michael Dawson og Ledley King eru allir mjög tæpir fyrir byrjun tímabilsins.
Þessi 23 ára gamli varnarmaður var með betri leikmönnum Newcastle á síðata tímabili þegar liðið féll niður úr ensku úrvalsdeildinni.
Bassong verður í banni í fyrstu tveimur leikjunum á tímabilinu þar sem hann fékk beint rautt spjald gegn Fulham í lok síðasta tímabils.

Heimild: Sky