Fotbolti.net
07.10.09 - 17:18
Hafliði Breiðfjörð

Gunnleifur Gunnleifsson í FH - Daði hættur í FH (Staðfest)

Gunnleifur Gunnleifsson er genginn í raðir FH.

Gunnleifur Gunnleifsson er genginn í raðir FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson er genginn í raðir FH frá HKen þetta var staðfest í tilkynningu frá Íslandsmeisturunum nú undir kvöld. Gunnleifur gerir þriggja ára samning við FH en um leið tilkynnti FH að Daði Lárusson hefur verið leystur undan samningi.
Yfirlýsing FH

Stjórn knattspyrnudeildar FH hefur náð samkomulagi við HK og Gunnleif Gunnleifsson um að Gunnleifur gangi í raðir FH. Gunnleifur gerir þriggja ára samning við FH. Félagið fagnar því að fá jafn sterkan leikmann og Gunnleif í sínar raðir og væntir mikils af honum.

Jafnframt er ljóst að Daði Lárusson sem verið hefur fyrsti markvörður félagsins undanfarin 14 keppnistímabil mun verða leystur undan samningi við félagið í samráði við hann sjálfan.

Stjórn knattspyrnudeildar vill nota tækifærið og þakka Daða fyrir frábæra þjónustu við félagið, þar sem hann hefur verið lykilmaður í öllum þeim fjölda titla sem félagið hefur unnið á síðustu misserum.

Daði er frábær markvörður og frábær félagsmaður sem á að baki glæstan feril og unnið til allra æðstu metorða sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu. Daða óskum við alls hins besta, hér eftir sem
hingað til.

Virðingarfyllst.
Stjórn knattspyrnudeildar FH
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.