07.12.07 - 18:27
Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Sóley og María Björg í KR (Staðfest)

Íris, María Björg og Guðrún Sóley eftir undirskriftina.

Mynd: KR

Guðrún Sóley í leik með Breiðablik gegn KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar sendu nú í kvöld frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt var að landsliðskonan Guðrún Sóley Gunnarsdóttir sé gengin í raðir félagsins frá Breiðablik þar sem hún hefur verið undanfarin tvö ár. Þá er María Björg Ágústsdóttir fyrrum landsliðsmarkvörður Íslands búin að taka fram skóna að nýju ætlar að spila með KR auk þess sem Íris Dögg Gunnarssdóttir sem varði mark liðsins í sumar endurnýjaði samning sinn.
uðrún Sóley Gunnarsdóttir sem er 26 ára gömul gengur til liðs við KR að nýju eftir að hafa leikið með Breiðabliki síðastliðin tvö ár. Guðrún lék fyrst með mfl. KR árið 1996 og er ellefti leikjahæsti KR-ingurinn með 158 leiki - og 12 mörk.
Guðrún hefur leikið 42 A-landsleiki (þ.á.m. alla leikina á þessu ári), 17 U21-landsleiki, 7 U19-landsleiki og 13 U17-landsleiki. Hún gerir samning við KR út tímabilið 2008.
Íris Dögg Gunnarsdóttir er 18 ára gamall markvörður sem kom til KR frá Fylki á miðju sumri 2006 (á yngsta árinu í 2. flokki). Hún lék fyrst með með mfl. í lokaumferð Landsbankadeildarinnar 2006 þegar KR mætti Fylki í Árbænum. Íris hefur leikið 29 leiki með mfl. KR, þar af 28 af 32 leikjum í sumar.
Íris lék þrjá leiki með U19-landsliðinu í undankeppni EM í haust. Íris stóð sig virkilega vel á nýliðnu keppnistímabili og er í hópi efnilegustu markvarða landsins. Íris var samningsbundin KR en gerir nú nýjan samning út keppnistímabilið 2010.
María Björg Ágústsdóttir er 25 ára gömul og kom til KR frá Stjörnunni fyrir leiktíðina 2004. María hefur leikið 22 leiki með mfl. KR á árunum 2004 og 2005 en hún tók sér frí frá fótboltanum árin 2006 og 2007.
María hefur leikið sjö A-landsleiki (þar af einn sem liðsmaður KR), 15 U21-landsleiki, 10 U19-landsleiki og 5 U17-landsleiki. María Björg er í hópi sterkustu markvarða landsins. Hún gerir samning út keppnistímabilið 2008.
Þá tilkynnti KR að Helena Ólafsdóttir verði áfram þjálfari liðsins og mun stýra liðinu næstu tvö tímabil. Ennfremur hefur verið gengið frá endurráðningu Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokksins. Undir þeirra stjórn vann liðið VISA-bikarinn í sumar og endaði í öðru sæti Landsbankadeildarinnar.