08.01.07 - 19:31
Paul Ifill til Crystal Palace (Staðfest)

Ifill í leik með Sheffield gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Ifill í leik með Sheffield gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur gengið frá kaupunum á kantmanninum Paul Ifill frá Sheffield United fyrir 750.000 pund. Hinn 27 ára gamli Ifill, sem lék áður með Millwall, fer því aftur til London en hann skrifaði undir samning til ársins 2009 við Palace sem leikir í ensku 1. deildinni.
Ifill gekk í raðir United í maí árið 2005 en eftir að hafa hjálpað liðinu að komast upp um deild á síðasta tímabili hefur hann aðeins byrjað þrjá leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
"Ég er kominn til félags sem er tilbúið að fara upp í úrvalsdeildina á nýjan leik og það er það sem við vonumst eftir. Þetta var ekki erfið ákvörðun og ég hlakka mikið til," sagði Ifill.
"Ég er kominn til félags sem er tilbúið að fara upp í úrvalsdeildina á nýjan leik og það er það sem við vonumst eftir. Þetta var ekki erfið ákvörðun og ég hlakka mikið til," sagði Ifill.
Heimild: BBC
