08.01.09 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason í Val (Staðfest)

Viktor Unnar í búningi Reading.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Framherjinn Viktor Unnar Illugason er genginn í raðir Vals frá enska félaginu Reading en Valur staðfesti þetta með fréttatilkynningu í dag. Viktor Unnar skrifaði undir tveggja ára samning við Val.
Félagaskipti hans til Vals hafa verið löng fæðing því hann hóf að æfa með liðinu í nóvember og spilaði með því æfingaleiki.
Hann staðfesti 1. desember í samtali við Fótbolta.net að hann byggist við að ganga frá samningi við félagið þá vikuna en það gekk loks í gegn í dag.
Viktor Unnar er framherji sem hefur verið í unglingaliði Reading undanfarin ár auk þess að spila með varaliði félagsins.
Hann er 18 ára gamall og hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék tíu leiki í Landsbankadeildinni og VISA-bikarnum fyrir Breiðablik.
Hann gekk í raðir Reading það sumar. Hann hafði stefnt á að spila síðustu leiktíð með Þrótti í Landsbankadeildinni en varð að hætta við það eftir að hafa bakbrotnað.
Hann er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Val frá síðustu leiktíð. Áður höfðu komið Haraldur Björnsson frá Hearts, Ian Jeffs frá Fylki, Ólafur Páll Snorrason frá Fjölni, Pétur Georg Markan frá Fjölni og Reynir Leósson frá Fram.
Félagið hefur hinsvegar misst þá Barry Smith, Guðmundur Benediktsson sem fór til KR og Danina Henrik Eggerts, Rasmus Hansen og Rene Carlsen.