08.01.09 - 15:49
Magnús Már Einarsson
Steinþór Freyr í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Stjarnan hefur fengið Steinþór Frey Þorsteinsson kantmann úr Breiðablik til liðs við sig en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
,,Þeir höfðu áhuga og ég var hjá Bjarna (Jóhannssyni) í Breiðablik. Síðan var ég ekkert að fá að spila hjá Breiðablik á síðasta tímabili,\" sagði Steinþór við Fótbolta.net í dag aðspurður út í þá ákvörðun að fara í Stjörnuna.
Steinþór hefur alla sína tíð leikið með Blikum en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki 17 ára gamall árið 2002. Á síðustu leiktíð lék þessi 23 ára gamli leikmaður fjórtán leiki í Landsbankadeildinni með Blikum og tvo leiki í VISA-bikarnum en hann hefur nú ákveðið að fara á nýjar slóðir.
,,Það er alltaf erfitt að fara frá liðinu sínu en þetta gekk ekki þar. Maður veit síðan ekki með framtíðina.\"
Stjarnan mun leika í Landsbankadeildinni að nýju í sumar eftir nokkurra ára fjarveru en Steinþór þekkir aðeins til hjá liðinu.
,,Ég þekki Ellert (Hreinsson) og Bigga (Birgi Hrafn Birgisson) mjög vel, Kári (Ársælsson) var þarna og síðan eru nokkrir gaurar sem ég þekki líka smá.\"
Steinþór Freyr hefur af og til tekið flikk-flakk innköst fyrir Breiðablik en þó í minna mæli undanfarin ár. Hann gæti hins vegar jafnvel tekið slík innköst með Stjörnunni næsta sumar.
,,Það kemur bara í ljós. Ég er ekkert búinn að kynna mér aðstæður í Garðabænum en ef það verður þurr dagur þá ætti maður að geta tekið einhver,\" sagði Steinþór við Fótbolta.net.