08.01.09 - 16:03
Magnús Már Einarsson
Matthew Etherington til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur keypt kantmanninn Matthew Etherington frá West Ham United fyrir þrjár milljónir punda.
Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Stoke en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með félaginu gegn Liverpool á laugardag.
Etherington kom til West Ham frá Tottenham árið 2003 en á þessari leiktíð hefur hann leikið þrettán leiki með Hömrunum.
,,Ég ræddi nokkrum sinnum við Tony Pulis (stjóra Stoke) og hann var frábær. Hann sannfærði mig um að þetta væri rétta skrefið,\" sagði Etherington í dag.
,,Vonandi get ég hjálpað fram á við, búið til mörk fyrir framherjana og potað einhverjum inn sjálfur.\" .

Heimild: BBC