Fotbolti.net
08.01.12 - 11:58
Hafliði Breiðfjörð

Paul Scholes til Manchester United (Staðfest) - Með í dag

Fær keppnistreyju núm er 22

Paul Scholes spilar með Manchester United út tímabilið. Hann er á bekknum gegn Manchester City klukkan 13:00.

Paul Scholes spilar með Manchester United út tímabilið. Hann er á bekknum gegn Manchester City klukkan 13:00.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester Unitd staðfesti á vef sínum rétt í þessu að Paul Scholes sé genginn í raðir félagsins að nýju og spilar með þeim út tímabilið.
Scholes kemur strax inn í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Manchester City sem hefst klukkan 13:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefur fengið úthlutað treyjunúmerinu 22.

Hann hafði lagt skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en vegna mikilla meiðsla hjá Manchester United samþykkti hann að taka fram skóna að nýju og er á bekknum í leiknum gegn nágrannaliðinu í dag.

,,Það er frábært að Paul hafi tekið þessa ákvörðun. Það er alltaf leiðinlegt að sjá frábæra leikmenn ljúka ferli sínum, en sérstaklega þegar þeir gera það of snemma,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd á vef félagsins.

,,En hann hefur haldið sér í frábæru formi og mér fannst alltaf að hann ætti annað tímabil í sér. Það er frábært að fá hann aftur.\"

Scholes bætti sjálfur við á sama vef: ,,Ég hef verið nokkuð klár á því síðan ég hætti að spila að ég sakna þess. Ég er ánægður með að stjóranum finnst ég geta skipt máli fyrir liðið og ég hlakka til að spila minn þátt í að reyna að fá meiri árangur í þetta frábæra félag.\"

Heimild: Vefur Man Utd

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.