08.01.12 - 19:05
Magnús Már Einarsson
Neil Warnock rekinn frá QPR (Staðfest)

Warnock kallar ekki allt ömmu sína.

Mynd: Getty Images

Warnock kallar ekki allt ömmu sína.

Mynd: Getty Images
QPR hefur staðfest að knattspyrnustjórinn Neil Warnock hafi verið rekinn úr starfi sínu. Warnock tók við QPR í mars árið 2010 og undir hans stjórn vann liðið Championship deildina á síðasta tímabili.
QPR hefur hins vegar ekki gengið vel að undanförnu en síðasti sigur liðsins kom í nóvember. Eftiir sex töp í síðustu átta úrvalsdeildarleikjum er QPR einungis stigi frá fallsæti og því hefur verið ákveðið að skipta um stjóra.
,,Þessi ákvörðun er tekin með hagsmuni félagsins í huga og ég get fullvissað alla um að þetta var ekki auðvelt,\" sagði Tony Fernandes formaður QPR.
,,Því miður hefur lélegt gengi okkar að undanförnu orðið til þess að við höfum hrapað niður töfluna og stjórnin taldi að þetta sé rétti tíminn til að gera breytingar.\"
Warnock er annar stjórinn sem fær að taka pokann sinn í ensku úrvalsdeildinni í vetur en Steve Bruce var rekinn frá Sunderland í síðasta mánuði.
Heiðar Helguson hefur verið aðalframherji QPR undanfarnar vikur og þrátt fyrir að vera markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu er óvíst hvar hann stendur þegar nýr stjóri tekur við á næstu dögum.

Heimild: Heimasíða QPR