Fotbolti.net
08.02.06 - 10:39
Magnús Már Einarsson

Chaplow lánaður til Southampton (Staðfest)

Chaplow í baráttu við David Bentley.

Chaplow í baráttu við David Bentley.

Canon

Mynd: Getty Images

Richard Chaplow miðjumaður West Bromwich Albion hefur verið lánaður til Southampton í þrjá mánuði. Þessi 21 árs gamli leikmaður kom til WBA frá Burnley á 1,5 milljónir punda fyrir um það bil ári síðan en hann hefur einungis verið fjórum sinnum í byrjunarliði á þessari leiktíð.
,,Ég vill byrja að spila aftur reglulega og þetta er gott tækifæri fyrir mig." sagði Chaplow við heimasíðu Southampton en George Burley stjóri liðsins sagði: ,,Honum líkar að fara fram og skora mörk og ég er ánægður með að hafa krækt í hann."

Bryan Robson stjóri WBA sagði: ,,Chappy hefur ekki alveg nógu mikla reynslu í augnablikinu til að spila í úrvalsdeildarleikjum. En ég held að það sé hægt að þróa hann í mjög góðan leikmann. Að fara til Southampton og spila aðalliðsfótbolta er hluti af þessari þróun og ég vona að hann komi til baka sem betri leikmaður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.