Fotbolti.net
08.02.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason

Manchester United fá ungan Brasilíumann (Staðfest)

Sir Alex Ferguson

Sir Alex Ferguson

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hafa nælt sér í Rodrigo Possebon, ungan brasilískan leikmann sem mun leika í treyju númer 34 hjá liðinu. Manchester héldu félagsskiptunum leyndum í janúarglugganum.
Possebon er lýst sem háum, varnarsinnuðum miðjumanni, sem kom frá brasilíska félaginu, Internacional.

Ensku meistararnir í United hafa verið orðaðir við leikmanninn frá því í sumar og hafa nú gengið frá samningum við hann.

,,Sir Alex Ferguson hefur gefið brasilíska ungstirninu Rodrigo Possebon númerið 34 hjá Manchester United," segir í yfirlýsingu Manchester United.

,,Þessi 18 ára miðjumaður kom frá Sport Club International í síðasta mánuði og mun hann æfa með varaliði félagsins, en mun færa sig uppí aðalliðið ef þess er þörf."

Possebon er svipaður leikmaður og Anderson, sem kom til United í sumar og mun hitta fyrir landa sína Fabio og Rafael en þeir eru tvíburar og spila báðir sem bakverðir. Þeir komu til liðsins frá Fluminense einnig í janúarmánuði síðastliðnum.

Alexandre Pato, landi og jafnaldri Possebon hefur slegið í gegn með AC Milan frá því í janúar og Possebon vonast væntanlega eftir því að gera slíkt hið sama í framtíðinni með United.

Heimild: Setanta Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.