Reynir Sandgerði var að styrkja leikmannahópinn sinn með tveimur nýjum leikmönnum fyrir komandi átök í 3. deildinni.
Mate Paponja er fluttur til Sandgerðis eftir að hafa leikið með Sindra síðustu níu ár, en hann steig sín fyrstu skref í íslenska boltanum með Fram fyrir heilum áratugi síðan.
Mate er 34 ára varnarsinnaður miðjumaður sem kemur inn í lið Reynismanna með mikla reynslu.
Guðjón Snorri Herbertsson kemur á láni frá Keflavík. Hann er markvörður fæddur 2005 sem lék einn leik á láni hjá Höfnum í 4. deildinni í fyrra.
Athugasemdir



