Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   sun 08. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ólafur Jóhann í Magna (Staðfest)
Mynd: Magni
Magni er búinn að krækja í Ólaf Jóhann Bergmann Steingrímsson úr röðum Völsungs.

Ólafur Jóhann, sem er yngri bróðir Hallgríms Mars og Hrannars Björns leikmanna KA, gerir tveggja ára samning við Grenvíkinga.

Ólafur er fæddur 1999 og hefur alla tíð leikið með uppeldisfélaginu Völsungi, að undanskildum árunum 2023 og 2024.

Hann á 173 leiki að baki í meistaraflokki og hefur skorað í þeim 18 mörk. Hann er fjölhæfur sóknarleikmaður sem getur leyst allar fremstu stöður á vellinum.

Magni leikur í 2. deild karla komandi sumar eftir að hafa komist upp úr 3. deild í fyrra.

Ólafur lék með Völsungi í Lengjudeildinni í fyrra.

   22.04.2025 17:30
Hin hliðin - Ólafur Jóhann Bergmann (Völsungur)



Athugasemdir
banner
banner