Fotbolti.net
08.03.05 - 16:54
Magnús Már Einarsson

Víkingur Ó. fær Einar í markið (Staðfest)

Einar í leik gegn FH í Visa-bikarnum síðastliðið sumar.

Einar í leik gegn FH í Visa-bikarnum síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík úr fyrstu deild hefur fengið markvörðinn Einar Hjörleifsson frá Aftureldingu. Einar sem hefur verið einn besti leikmaður Aftureldingar undanfarin ár lék alls sautján leiki í annari deildinni síðastliðið sumar.
Vilberg Kristjánsson sem varði mark Víkings á síðustu leiktíð var valinn í úrvalsliðið í annari deild af þjálfurum liðanna en hann er þessa stundina í fríi frá fótbolta og óvíst er hversu mikið hann leikur með Víkingum næsta sumar.

Jónas Gestur Jónasson formaður knattspyrnudeildar Víkings og leikmaður með liðinu sagði í samtali við Fótbolti.net að liðið muni styrkja sig um 2-3 menn fyrir mót og er einn Serbi í sigtinu hjá liðinu nú þegar en liðið hefur þegar erlendu leikmennina Aleksandar Linta og Suad Begic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.