08.03.06 - 09:33
Hafliði Breiðfjörð
Arnljótur Ástvaldsson í Þrótt (Staðfest)

Arnljótur Ástvaldsson.

Mynd: Sport.is

Arnljótur Ástvaldsson.

Mynd: Sport.is
Miðjumaðurinn Arnljótur Ástvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Þrótt. Arnljótur kemur frá Þór Akureyri og lék hann 17 leiki með þeim á síðasta tímabili og skoraði í þeim 2 mörk.
Hann er annars uppalinn KR-ingur og skoraði meðal annars 4 mörk á 20 mínútum í eftirminnilegum 5-11 tapi Þróttar gegn Vesturbæingum í framlengdum leik deildarbikarnum árið 2003.
Þróttarar verða með mikið breytt lið í 1. deildinni næsta sumar frá því sem var í fyrra er þeir léku í Landsbankadeildinni. Auk þess að fá Arnljót gengu þeir Þórhallur Hinriksson og Þorsteinn Gíslason í raðir liðsins á dögunum en fyrr í sumar höfðu Baldvin Jón Hallgrímsson komið frá Val og Óskar Snær Vignisson frá Hvöt.
Þá er félagið að vinna í að fá enn frekari liðsstyrk, þar á meðal er verið að skoða leikmenn frá Króatíu.